


síðasta kvöldmáltíðin var snædd á Hanul lui Manuc sem er í einu af elstu húsum borgarinnar. Upprunalega byggt sem gistihús fyrir kaupmennina sem ferðuðust um með allt sitt góss og þvi er stíllinn nokkuð sérstakur -herbergi sem gengið er inn af svölunum, húsið byggt utan um garð sem hýsti hestana og hestakerrurnar..hér mun gestalistinn í gegnum árin vera ansi skrautlegur; kaupmenn, glæpamenn og portkonur. Sagan segir að upprunalegur eigandi hafi dáið eftir að hafa verið byrlað eitur af spákonu nokkurri sem sá sig knúna til að drepa hann þar sem hún hafði spáð honum bráðum dauðdaga og vildi að sjálfsögðu ekki láta spyrjast að spár hennar rættust ekki.
Við reyndum að bóka gistingu en því miður missti hóteleigandinn leyfi fyrir gistingu vegna rottugangs svo við leituðum á önnur mið. Svo kvöldverður varð að nægja í þetta skipti. Hann var hreint unaðslegur.







