Saturday, May 26, 2007

Menn og kýr

Það er margt sem vekur athygli þegar ferðast er um Rúmeníu. Til dæmis fjárhirðar í öllum högum með geitahópinn sinn, rollurnar eða kúahjörð. Okkur skilst að það sé nokkuð algengt að eiga eins og eina kú og koma henni þá í pössun á daginn meðan maður er í vinnunni. Kúarektorinn annast þá margar kýr frá mismunandi heimilum. En svo þegar líða tekur að kvöldi er mjög algengt að sjá meðfram vegunum mann úti að ganga með kúna sína. Hrikalega krúttlegt. Alveg eins og hundaeigendur nema bara með svolítið stærra dýr í bandi.

No comments: