Saturday, May 26, 2007

Sælkerakvöld að hætti innfæddra

var skipulagt af kennurum skólans og höfðu sumir vakað frameftir við að útbúa allskyns rétti sem hinum tignu gestum var boðið uppá. Góð mæting. Allir í stuði.-eða þannig
Kennarahópurinn nokkuð við aldur og einhvernvegin er það svo að þetta elskulega fólk er ekki mjög framfærið svona í fyrstu. Það breyttist þó fljótt því um leið og við vorum búin að fá smá næringu í kroppin var stormað fram á gang þar sem gettóblasterinn var þaninn í botn og settlegustu kennslukonur slepptu sér algjörlega í trylltum dansi á flísunum. Öllum stoðtækjum skutlað út í horn og eins og tyrkneskar drottningar áttu þær staðinn. Sumar höfðu verið svo forsjálar að taka með sér sérstök danspils en hér er það mikið atriði að geta sveiflað pilsinu vel í dansi. Myndir segja meira en mörg orð…við vitum ekki hvað ykkur finnst en þetta var ein sú súrrealískasta kvöldstund sem við höfum átt.

No comments: