
Ég er búin að komast að tvennu um Birnu í þessari ferð. Númer 1: Hún er versti pílukastari sem fyrir finnst. Það stóð þó ekki í vegi fyrir henni að skora á allt welska rugby-liðið. Vesalings leikmennirnir máttu vera fljótir að forða sér til að komast hjá varanlegum augnskemmdum því að hún hittir á allt nema hringinn.
Númer 2: Hún getur ekki verslað eins og eðlileg manneskja. Hún þarf að kyssa sölukonurnar eins og þær hafi gert henni stórkostlega greiða með því að láta varninginn frá sér. Hún sló þó algert met í gær þegar hún verslaði dúka á vegarkanti einum. Myndbandið útskýrir allt.
Annars er hún alveg ágæt og er komin í import bisnessinn. það lítur út fyrir að það verði stórkostleg fjölgun af Rúmenum á Íslandi. Ekki er hún bara búin að flytja inn heilan kór heldur er öllu fólki boðið að koma við hvaða undarlegustu aðstæður sem hún hittir það.
1 comment:
Er ástæða til að líta í kringum sig með rúmenskukennara vegna þessarar fólksfjölgunar? Er annars ekki alveg öruggt að þið komið aftur ?????
Gott að frétta af ykkur, hlökkum til að heyra allllllllllla ferðasöguna eftir helgi !!
kv. Inga
Post a Comment