Tuesday, May 22, 2007

af húsmæðrum í Rúmeníu

Það vantar svolítið inn á þetta blogg þar sem prógrammið hefur verið nokkuð þéttar en við kannski gerðum ráð fyrir. En á sunnudag áttum við ótrúlegan dag til kl.4 í Bukarest en þá tókum við lest til Iasi.Ævintýraleg ferð sem fær sérstaka umfjöllun með myndum við fyrsta tækifæri.En við komumst að því að hér er hesturinn enn þarfasti þjónninn og ansninn kanski nr.2, svo sáum við einn traktor sem gæti hafa verið flottur á byggðasafninu á Skógum. ´Fyrsta skipti sem ég ferðast á 1. farrými og Váááá´..eftir smástund áttuðum við okkur á því að 2. farrými var mun skárra!!Kannski var það gyllta vinnuvélamálningin á klefahurðinni sem gerði 1. klassa ..? Annað sem við komumst að er að það er ekkert lagt sérstaklega uppúr því að hafa lestarhurðir lokaðar á ferð svo það er betra að vera með ballansinn í lagi sé maður eitthvað að rápa um lestina á ferð. skrýtið fyrst en venst.

Í gær -mánudag var móttaka í skólanum hér sem var hreint mögnuð. Börnin tóku á móti okkur í heimagerðum þjóðbúningum allra landa sem taka þátt í verkefninu og buðu upp á brauð og salt,að þjóðlegum sið. Að því loknu var farið með gestina í kennslustofurnar þar sem hafði verið undirbúið þema frá öllum löndum og börnin föndruðu eitthvað sem tengdist viðkomandi landi, dönsuðu eða sungu! Hreint magnað.
Í dag var okkur svo boðið í skoðunarferð um borgina í minibus ÁN loftræstingar í 34 stiga hita. Mjög áhugavert engu að síður og til að kóróna daginn var búið að panta borð á hreint frábærum veitingastað þar sem skólastjórinn, Ofelia og nokkrir kennarar skólans voru búin að skipuleggja borðhald með þvílíkum glans. Hófst með að við vorum teymd í rökkri niður ranghala og stiga þar til við komum niður í vínkjallara frá 18. öld hvar við fengum snafs og sögur. Svo tók við borðhald sem var kórónað með snilldartónlist þar sem sígaunaband spilaði af algjörri list undir borðum og til að toppa það var einmitt hópur af fólki á staðnum sem skartaði þvílíkri snilldarsöngkonu sem tok að sér að stýra borðinu sínu í taumlausri gleði og drama sem smitaði okkur að sjálfsögðu öll og við hreinlega brustum út í dansi og gleði! Veðrið er sól og 34-36 stiga hiti en hey- þegar maður fréttir af sjókomu á Íslandi þá kvartar maður ekki þó kjörhitastigið fari aðeins upp fyrir skalann!

1 comment:

Anonymous said...

takk takk takk
fyrir að leyfa okkur að fylgjast með