Saturday, May 26, 2007

Hanul lui Manuc




síðasta kvöldmáltíðin var snædd á Hanul lui Manuc sem er í einu af elstu húsum borgarinnar. Upprunalega byggt sem gistihús fyrir kaupmennina sem ferðuðust um með allt sitt góss og þvi er stíllinn nokkuð sérstakur -herbergi sem gengið er inn af svölunum, húsið byggt utan um garð sem hýsti hestana og hestakerrurnar..hér mun gestalistinn í gegnum árin vera ansi skrautlegur; kaupmenn, glæpamenn og portkonur. Sagan segir að upprunalegur eigandi hafi dáið eftir að hafa verið byrlað eitur af spákonu nokkurri sem sá sig knúna til að drepa hann þar sem hún hafði spáð honum bráðum dauðdaga og vildi að sjálfsögðu ekki láta spyrjast að spár hennar rættust ekki.
Við reyndum að bóka gistingu en því miður missti hóteleigandinn leyfi fyrir gistingu vegna rottugangs svo við leituðum á önnur mið. Svo kvöldverður varð að nægja í þetta skipti. Hann var hreint unaðslegur.

Í dag keypti Birna kápu





Í Taxa - mjög hættulegt



Menn og kýr

Það er margt sem vekur athygli þegar ferðast er um Rúmeníu. Til dæmis fjárhirðar í öllum högum með geitahópinn sinn, rollurnar eða kúahjörð. Okkur skilst að það sé nokkuð algengt að eiga eins og eina kú og koma henni þá í pössun á daginn meðan maður er í vinnunni. Kúarektorinn annast þá margar kýr frá mismunandi heimilum. En svo þegar líða tekur að kvöldi er mjög algengt að sjá meðfram vegunum mann úti að ganga með kúna sína. Hrikalega krúttlegt. Alveg eins og hundaeigendur nema bara með svolítið stærra dýr í bandi.

Sælkerakvöld að hætti innfæddra

var skipulagt af kennurum skólans og höfðu sumir vakað frameftir við að útbúa allskyns rétti sem hinum tignu gestum var boðið uppá. Góð mæting. Allir í stuði.-eða þannig
Kennarahópurinn nokkuð við aldur og einhvernvegin er það svo að þetta elskulega fólk er ekki mjög framfærið svona í fyrstu. Það breyttist þó fljótt því um leið og við vorum búin að fá smá næringu í kroppin var stormað fram á gang þar sem gettóblasterinn var þaninn í botn og settlegustu kennslukonur slepptu sér algjörlega í trylltum dansi á flísunum. Öllum stoðtækjum skutlað út í horn og eins og tyrkneskar drottningar áttu þær staðinn. Sumar höfðu verið svo forsjálar að taka með sér sérstök danspils en hér er það mikið atriði að geta sveiflað pilsinu vel í dansi. Myndir segja meira en mörg orð…við vitum ekki hvað ykkur finnst en þetta var ein sú súrrealískasta kvöldstund sem við höfum átt.

Leigubílstjórinn minn


…….heitir Edwin Bogdan og við náðum að bonda feitt á þeim fimm mínútum sem það tók hann að skutla okkur af hótelinu á lestarstöðina. –á rúmensku.
Hann á að baki sjö ára slysalausan feril sem leigubílstjóri sem hlýtur að teljast til kraftaverka miðað við umferðarmenninguna hér. Það þykir þó algjör óþarfi að nota öryggisbelti og enda þó þau séu standard búnaður í öllum bílum þá ekkert til að spenna þau föst í. Edwin minn segir að það sé alveg nóg að hafa bara helgigripi og maríumyndir í bílum, það virki bara eins og loftpúði. Ég vona bara að hann lendi ekki í neinu þó hann hafi gefið mér maríumyndina sína.

Lífvörðurinn minn


…er líka mjög langur. En svo er hann líka fjarskalega örlátur og gestrisinn. Þegar dansiballinu með kennurunum lauk klukkan átta, dreif hann okkur á veitingahús til að drekka “eitt glas” og ef til vill kíkja á leikinn Liverpool-AC Milan. Með þetta útlit komst maður samt varla hjá því að velta fyrir sér hvort hann væri að hösla með nýrun á okkur þegar hann stóð á stéttinni og þurfti að hringja mörg mörg símtöl til að redda leigubílum fyrir ferðina. En nei aldrei að dæma bókina eftir útlitinu því þó hann væri örugglega flottasti krimminn í næstu Bond mynd þá er innrætið greinilega í samræmi við nafnið hans sem hljómar eins og beibí.
Á veitingastaðnum var jú leikurinn á breiðtjaldi en innfæddum var ekki gefinn neinn séns á að hlusta á hann, bara horfa, því beibí var með gesti og hann ekki nóg með að hann hafi pantað drykki á borðið eins og um móttöku í sendiráði væri að ræða heldur var hann líka búinn að panta hljómsveit-ir til að spila fyrir erlendu gestina. Gestrisnin er svo innbyggð í fólk að engum datt í hug að gera neina athugasemd við þetta.

Langt til Rúmeníu




Það er ekki bara að það sé svo langt til Rúmeníu heldur er allt eitthvað svo langt hérna. Strax og maður flýgur yfir landið tekur maður eftir því hvað byggðin er allsstaðar löng og þyrpist utan um vegina. Lítil þorp spanna kannski tugi kílómetra. Rúmenar eru fjarskalega söngelsk þjóð og syngja og dansa af hjartans list. En mikið rosalega eru lögin þeirra löng! Ef við tækjum Gunnarshólma tvisvar gætum við hugsanlega verið að tala saman. Og svona heldur þetta áfram. Blessuð börnin í Alecu Russo skólanum undirbjuggu kynningu á sögufrægum hetjum þjóðarinnar og lásu fyrir okkur ræður sem hefðu sæmt áramótaávarpi útvarpsstjóra hvað lengd varðar. –Á rúmensku.

Thursday, May 24, 2007

Um Birnu og undarlegar áráttur


Ég er búin að komast að tvennu um Birnu í þessari ferð. Númer 1: Hún er versti pílukastari sem fyrir finnst. Það stóð þó ekki í vegi fyrir henni að skora á allt welska rugby-liðið. Vesalings leikmennirnir máttu vera fljótir að forða sér til að komast hjá varanlegum augnskemmdum því að hún hittir á allt nema hringinn.
Númer 2: Hún getur ekki verslað eins og eðlileg manneskja. Hún þarf að kyssa sölukonurnar eins og þær hafi gert henni stórkostlega greiða með því að láta varninginn frá sér. Hún sló þó algert met í gær þegar hún verslaði dúka á vegarkanti einum. Myndbandið útskýrir allt.
Annars er hún alveg ágæt og er komin í import bisnessinn. það lítur út fyrir að það verði stórkostleg fjölgun af Rúmenum á Íslandi. Ekki er hún bara búin að flytja inn heilan kór heldur er öllu fólki boðið að koma við hvaða undarlegustu aðstæður sem hún hittir það.

Ferð í klaustur






Eftir fundinn í dag buðu Hollendingarnir í ferðinni þau Ilse og Marten okkur með í klaustursferð. Þvíklík sjónleg orgía. Best hefði verið að stoppa á nokkra sekúnda fresti til að taka mynd. Því miður var það ekki tekið í mál. Hér eru nokkur sýnishorn.

Alecu Russo fleiri myndir




Í dag fórum við á langa langa langa kyningu í skólann. Við sýndum myndbandið okkar við góðar undirtektir nemenda. Skólinn og móttökurnar hafa verið ólýsanlegar. Þvílík gestrisni. Hér eru nokkrar myndir frá því í morgun.

Wednesday, May 23, 2007

Alecu Russo


Vinnudagur

ójá elskurnar þetta er ekki bara dolce vita..Í dag var skipulagsfundurinn okkar. Hitastig 36 gráður utandyra, 50 gráður í sólinni en sem betur fer fengum við að vera inni í aðeins umþaðbil 30 gráðum.
Seinnipart dags var var boðið til veislu -enn og aftur, þeir eru voða voða flinkir við að halda veislur rúmenarnir! Og á morgun nákvæmlega verður hér myndasýning á þessari síðu sem þið viljið ekki missa af kæru vinir.
Það er voða voða gaman að fá komment fráykkur svo endilega-ekki vera feimin við að senda okkur línu og ef þið viljið láta spá fyrir ykkur í beinni er ekkert mál að plotta það:-)ást, hamingja og taumlaus gleði!!

Meeting

kjgkfjgk kfjgksjdl jkjgkjflkgj

Tuesday, May 22, 2007

af húsmæðrum í Rúmeníu

Það vantar svolítið inn á þetta blogg þar sem prógrammið hefur verið nokkuð þéttar en við kannski gerðum ráð fyrir. En á sunnudag áttum við ótrúlegan dag til kl.4 í Bukarest en þá tókum við lest til Iasi.Ævintýraleg ferð sem fær sérstaka umfjöllun með myndum við fyrsta tækifæri.En við komumst að því að hér er hesturinn enn þarfasti þjónninn og ansninn kanski nr.2, svo sáum við einn traktor sem gæti hafa verið flottur á byggðasafninu á Skógum. ´Fyrsta skipti sem ég ferðast á 1. farrými og Váááá´..eftir smástund áttuðum við okkur á því að 2. farrými var mun skárra!!Kannski var það gyllta vinnuvélamálningin á klefahurðinni sem gerði 1. klassa ..? Annað sem við komumst að er að það er ekkert lagt sérstaklega uppúr því að hafa lestarhurðir lokaðar á ferð svo það er betra að vera með ballansinn í lagi sé maður eitthvað að rápa um lestina á ferð. skrýtið fyrst en venst.

Í gær -mánudag var móttaka í skólanum hér sem var hreint mögnuð. Börnin tóku á móti okkur í heimagerðum þjóðbúningum allra landa sem taka þátt í verkefninu og buðu upp á brauð og salt,að þjóðlegum sið. Að því loknu var farið með gestina í kennslustofurnar þar sem hafði verið undirbúið þema frá öllum löndum og börnin föndruðu eitthvað sem tengdist viðkomandi landi, dönsuðu eða sungu! Hreint magnað.
Í dag var okkur svo boðið í skoðunarferð um borgina í minibus ÁN loftræstingar í 34 stiga hita. Mjög áhugavert engu að síður og til að kóróna daginn var búið að panta borð á hreint frábærum veitingastað þar sem skólastjórinn, Ofelia og nokkrir kennarar skólans voru búin að skipuleggja borðhald með þvílíkum glans. Hófst með að við vorum teymd í rökkri niður ranghala og stiga þar til við komum niður í vínkjallara frá 18. öld hvar við fengum snafs og sögur. Svo tók við borðhald sem var kórónað með snilldartónlist þar sem sígaunaband spilaði af algjörri list undir borðum og til að toppa það var einmitt hópur af fólki á staðnum sem skartaði þvílíkri snilldarsöngkonu sem tok að sér að stýra borðinu sínu í taumlausri gleði og drama sem smitaði okkur að sjálfsögðu öll og við hreinlega brustum út í dansi og gleði! Veðrið er sól og 34-36 stiga hiti en hey- þegar maður fréttir af sjókomu á Íslandi þá kvartar maður ekki þó kjörhitastigið fari aðeins upp fyrir skalann!

Sígunakvöld aldarinnar





Þetta var eitt besta kvöld í manna minnum. Útskýrum nánar með myndbandi.

Myndir frá Búkarest



Búkarest - annar dagur - 1. hluti


Við erum ástfangnar............ af Búkarest. Þessi staður er magnaður - allt fullt af kontröstum. Einu vonbrigðin eru þau að ég (Erla) bjóst við fögrum flokki síguna þyrpast að mér strax við lendingu. Sjáið til. Ég hef góða reynslu af sígunum og þeirra spádómum. Þegar ég var ung þá spáði ágætis sígunakona að mér myndi hlotnast fagur og blíður prins. Rættist. Þegar ég ásamt prinsinum vorum stödd nokkrum árum síðar á Spáni var okkur spáð ljúfum afkvæmum. Rættist. Þannig að ég bíð spennt efir næsta spádómi. Það er svooo hægt að treysta þessum frumlegu spám.
Állt er gott í augnablikinu og við ætlum að taka lest seinna í dag til Iasi - borið fram sem Jass-ss.
Birna bætir við á eftir. Nú er allt í fullsvíng í bloggi.
Þökkkum kærlega fyrir kommentin. það er frábært að fá þau.
Til hamingju Sara og Hanna með prins Smart.

Sunday, May 20, 2007

Sunnudagur

Jaeja, vid erum bunar ad fara i messu eins og tilheyrir..Fundum lika apotekara sem var afar orlat a syklalyf, tannig ad allt tetta er allt ad koma. Nu er bara ad kaupa naerfotin og ta erum vid finar.
I leidinni aetlum vid ad kikja a hina sogufraegu holl Ciaosecu og gamla hverfid rett adur en vid tokum lestina til Iasi.
Otruleg borg...!

Saturday, May 19, 2007

Tvær úr tungunum...

Þá erum við loks lentar. Og eins og okkar var von og vísa gekk ýmislegt á á þessu langa og stranga ferðalagi sem´Keflavík-París-Bukarest er...
Erla er afar heilsutæp og hóstaði alla aftast í báðar vélar, það lítur ekki mjög vel út en, hún harkaði af sér og er enn með töluverðum lífsmörkum.
Til að ferðast létt ákváðum við að nýta okkur snilldarþjónustu Icelandair og tékka töskurnar inn fyrir bæði flugin. De Gaulle flugvöllur er ekki fyrir viðvanginga en eftir nokkra leit og strangar framburðaræfingar í frönsku fundum við brottfararsvæðið okkar. Létum lítið fyrir okkur fara, sniffuðum osta og ræddum horfurnar.Mmm þar komst ég einmitt að því að ég hafði breytt stillingum á símanum mínum og gat ekki opnað hann. Leiðinlegt því pin númerið á visakortinu mínu er einmitt þar..
Við tók hreint dásamlegt flug til Búkarest þar sem starfsfólk var fleira en farþegar og flugstjórinn afar öruggur í lendinu sem flugtaki. Skiptir máli fyrir miðaldra húsmæður. Það leit nú út fyrir greiða leið til borgarinnar af flugvellinum þar sem ljóst var við lendigu að starfsfólk beið í röðum eftir að afhlaða þessar fáu töskur sem voru í vélinni. En viti menn..þessar tvær sem voru tékkaðar inn á Keflavík gleymdu sér í París. Þær munu vera væntanlegar til áfangastaðar okkar ekkámorgunheldurhinn- til Iasi sem er fyrirheitna borgin í þessari ferð.
Það vildi svo óheppilega til að fúkkalyfin og ýmislegt fleira nytsamlegt fannst í þessum töskum..apótekararnir voru ekki sérlega viljugir í kvöld að dæla út lyfseðilsskyldum pillum en við reynum aftur á morgun. Ójá- og usb tengin eru þar líka þ.a í bili eru engar myndbirtingar á þessari síðu.
Við tökum fyrirætlaðar skoðanaferðir morgundagsins út af dagskrá og förum þess í stað að versla nærföt og annan nauðsynjavarning.
En hei! Við erum enn með tölvuna!

Tuesday, May 15, 2007

Carmen fra Rumeniu


Carmen hjálpaði okkur að setja texta undir myndbandið. Erum glaðar yfir að eiga rúmenskan verndara.

Monday, May 14, 2007

Veðurfar

Það er rétt að róta í fataskápnum og klippa ermar og skálmar af.........Hitinn í Búkarest var 31 gráða á Celsius í dag! Var ekki alveg búin að ígrunda þennan möguleika en sjúkk að ég tékkaði á því vegna þess að ég var alveg að fara að viðra loðhúfuna fyrir brottför;-)

Thursday, May 10, 2007

Hótelherbergi pantað

Pöntuðum þetta fína hótelherbergi handa okkur í fyrrverandi gömlu hóruhúsi. Standardinn er þvílíkt hár. Fínt fyrir myndatökur vonandi.

Friday, April 13, 2007

Farið verður til Rúmeníu þann 19. maí 2007.
Ítarleg ferðasaga verður skrifuð á meðan hún gerist...